ARMAR er stærsta leigufyrirtæki í byggingaiðnaði á Íslandi og státar af bílum, tækjum og fjölbreyttum vélakosti á flestum verkstöðum um land allt.
ARMAR VINNULYFTUR EHF var stofnað árið 1999 og samanstóð vélakosturinn af einum glussakrana til útleigu. Árið 2001 stækkaði leigan með kaupum á tíu vinnulyftum, bæði skæra- og spjótlyftum. Fyrirtækið óx svo jafnt og þétt næstu ár þar á eftir og árið 2005 voru leigutækin orðin rúmlega hundrað.
Í dag er tækjafloti Arma Vinnulyftna ehf. kominn í rúmlega sex hundruð tæki sem samanstanda af skæralyftum, spjótlyftum, lyfturum, skotbómulyfturum, rafstöðvum og öðrum smærri tækjum sem tengjast byggingariðnaði og öðrum framkvæmdum.
Við erum umboðsaðili Genie vinnulyftna á Íslandi.
ARMAR MÓT & KRANAR EHF sérhæfa sig í útleigu á steypumótum, undirsláttarkerfum og byggingakrönum. Sem og sölu á steypufylgihlutum.
Við erum umboðsaðilar Peri á Íslandi.
ARMAR JARÐVÉLAR EHF bjóða upp á mikið úrval af hjóla- og beltagröfum. Hjólagröfur eru fjölhæf tæki sem henta vel til smærri og meðalstórra verkefna. Hægt er að fá fleyga á nokkrar gerðir af beltagröfum auk þess sem mikið er til af skóflum.
ARMAR BÍLAR EHF býður upp á fjölbreytt úrval af bílum, allt frá smábílum til stærri jeppa og pallbíla eins og t.d. Toyota HiLux, Land Cruiser eða Land Rover Discovery.
Markmið Arma Bíla er að veita núverandi viðskiptavinum Arma aukið vöruúrval og betri þjónustu.
Armar Bílar býður upp á rekstrarleigu á bílum, jafnt nýjum sem notuðum, allt frá 6 mánuðum til 5 ára, gegn föstu mánaðargjaldi.