Armar og Klettur afhentu Íslenskum aðalverktökum nýja jarðýtu, CAT D10, við hátíðlega athöfn á föstudaginn sl.
Jarðýtan verður staðsett fyrst um sinn í Stapafellsnámu. Með þessari endurnýjun eykst rekstraröryggi efnisframleiðslu í öllum námum ÍAV.
CAT D10 er ein öflugasta og tæknivæddasta jarðýta í heimi. Hún er hönnuð fyrir erfiðustu verkefnin í námugreftri og stórframkvæmdum þar sem áhersla er lögð á endingu og afköst. Við óskum ÍAV innilega til hamingju með nýju vélina!

Mynd: ÍAV