Armar Bílar býður upp á fjölbreytt úrval af bílum, allt frá smábílum til stærri jeppa og pallbíla eins og t.d. Toyota HiLux, Land Cruiser eða Land Rover Discovery. Markmið Arma Bíla er að veita núverandi viðskiptavinum Arma aukið vöruúrval og betri þjónustu. Armar Bílar býður upp á rekstrarleigu á bílum, jafnt nýjum sem notuðum, allt frá 6 mánuðum til 5 ára, gegn föstu mánaðargjaldi. Með þessu geta Armar Bílar boðið viðskiptavinum sínum að losna við fjárbindingu í bílum og nýtt þar af leiðandi eigið fjármagn betur.

Einnig losna viðskiptavinir við endursöluáhættu og auka sveigjanleika í rekstri. Viðskiptavinir geta sjálfir valið hvaða gerð bíla þeir vilja leigja og hvaða búnað þeir vilja hafa í þeim.

Sölustjóri Arma Bíla ehf.: Leifi s. 6601765
Verkstæði, dekkjaskipti og smurþjónusta: Halldór s. 6601709

  • BÍLAR
  • DEILDIR

    Add Your Heading Text Here

    • DEILDIR